EurovisionworldEurovisionworld
 

Söngvakeppni Sjónvarpsins 2010:
Hvanndalsbræður - "Gleði og glens"

4.1 stars ★ 5 ratings

Video

Söngvakeppni Sjónvarpsins 2010 - Semi-final 2

Results

Lyrics: Gleði og glens

 

Gleði og glens

Þú varst alltaf svo fýlugjörn
Í fýlu upp við Lómatjörn
Í fýlu hér og fýlu þar
Í fýlu alls staðar

Því ekki að taka lífið létt
Og í fíflagangi taka á sprett?
Og hoppa síðan upp í loft?
Ég geri þetta oft

Því gleði og glens er allra meina bót
Fýlukast sem fjötur er um fót
Verum glöð og geislandi
Og gerum okkur far
Um að rýna beint á björtu hliðarnar

Þótt veðurguðinn sé með mont
Og láti herja veður vont
Við rekum ei upp neyðargól
Því í huga okkar er sól

Við sullum bara í pollunum
Og ruglum smá í rollunum
Við þolum ekki þras og mas
En þyggjum kakó glas

Því gleði og glens er allra meina bót
Fýlukast sem fjötur er um fót
Verum glöð og geislandi
Og gerum okkur far
Um að rýna beint á björtu hliðarnar

Út að eyrum brosa skalt
Þótt lífið stundum virðist valt
Með brosi gegnum þrautir ferð
Það er skjöldur þinn og sverð

Því gleði og glens er allra meina bót
Fýlukast sem fjötur er um fót
Verum glöð og geislandi
Og gerum okkur far
Um að rýna beint á björtu hliðarnar

Því gleði og glens er allra meina bót
Fýlukast sem fjötur er um fót
Verum glöð og geiѕlandi
Og gerum okkur far
Um að rýna beint á björtu hliðarnаr

Artist/group (stage name)Hvanndalsbræður
ArtistHvanndalsbræður
TitleGleði og glens
Title (English)Joy and happiness
SongwriterRögnvaldur Rögnvaldsson
LanguageIcelandic

Eurovision News