EurovisionworldEurovisionworld
 

Söngvakeppni Sjónvarpsins 1989:
Ellen Kristjánsdóttir - "Línudans"

4.5 stars ★ 8 ratings

Video

Söngvakeppni Sjónvarpsins 1989

Result

Lyrics: Línudans

 

Línudans

Amma átti amerískan tengdason
En hann drakk sig loks í hel
Heillengi hélt hún í þá veiku von
Að hann vildi reynast vel

Hann kom með viský og hann komm með bjór
Hékk yfir glasinu dapur og sljór
Hún sagði á ensku; You drink like a swine
Hann svaraði; Oh no, pretty mama, I'm just walking the line

Maður minn lifnar ekki við
Fyrr en eftir tvo eða þrjá
Ég tel ekki sjússinn lengur oní hann
Því hann lætur engan sjá

Heldur það enn að hann eigi einhvern séns
Í síðbúinn sweet sixteen big romance
Mjög er hann mjúkur í meyjafans
Og mælir; Dans, dans, lífið er línudans

Heldur það enn að hann eigi einhvern séns
Í síðbúinn sweet sixteen big romance
Mjög er hann mjúkur í meyjafans
Og mælir; Dans, dans, lífið er línudans

Línudans…

Við eigum son sem vill komast að
Á karate námskeiði
Læra alla slagsmálaklækina
Sem hann horfir á í sjónvarpi

Hann segir stundum; You drink like a swine
Og ég svara á ensku; Just sippin' my wine
Í huganum ómur af orðum míns manns
Mælir; Dans, dans, lífið er línudans

Línudans…

Heldur það enn að hann eigi einhvern séns
Í síðbúinn sweet sixteen big romance
Mjög er hann mjúkur í meyjafans
Og mælir; Dans, dans, lífið er línudans

Línudаnѕ…

Artist/group (stage name)Ellen Kristjánsdóttir
ArtistEllen Kristjánsdóttir
TitleLínudans
Title (English)Line dance
SongwriterMagnús Eiriksson
LanguageIcelandic

Eurovision News